Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 80 milljónir króna sem gerir kleift að ljúka framkvæmdum við nýtt sjúkrahúsapótek spítalans. Framlagið kemur til viðbótar 120 milljónum króna sem ráðherra tryggði til verkefnisins í fyrra. Framkvæmdir hafa gengið vel og er þess vænst að hægt verði að ljúka þeim og hefja starfsemi í nýju sjúkrahúsapóteki á þessu ári. 

Ríkar kröfur eru gerðar um aðstæður og skilyrði á sjúkrahúsapótekum til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga. Þar fer t.d. fram blöndun frumubreytandi lyfja við krabbameinum og viðlíka verkefni sem kalla á sérhæfðar og öruggar aðstæður. Með nýju húsnæði verða aðstæður eins og best verður kosið og í samræmi við gildandi staðla um starfsemi af þessu tagi.