Í nótt gekk dökkklæddur fremur lágvaxinn maður með svarta skíðagrímu fyrir andlitinu inn í nokkur hús í suðurbænum á Siglufirði. Ekki er vitað hvort það voru fleiri þjófar en hann á ferðinni.

Ekki var um innbrot að ræða, þar sem hann fór inn var óslæst og telst það vera húsbrot að sögn lögreglunnar.

Að minnsta kosti tveir einstaklingar urðu mannsins varir og varð þeim mikið um að mæta honum innandyra hjá sér.

Eins hurfu verðmæti hjá öðrum þar sem þjófurinn komst inn og lét greipar sópa. Talið er að hann hafi athafnað sig um og eftir miðnætti.

Sigurbjörn Þorgeirsson lögreglumaður í Fjallabyggð segir málið grafalvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að öll húsin voru ólæst og þurfa íbúar að horfa fram á nýjan raunveruleika, þar sem ekki er lengur óhætt að hafa húsin ólæst.

Lögreglan leitaði mannsins fram eftir nóttu en hafði ekki erindi sem erfiði.

Þeim sem geta gefið upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við Lögregluna á Norðurlandi eystra í síma, 444 2800