Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á fæðubótarefninu The True Original – Animal pak dietary supplement sem fyrirtækið Prótín.is flytur inn og selur í vefverslun sinni. Innköllunin er vegna þess að það er of hátt magn af B6 vítamíni í ráðlögðum dagskammti. Matvælastofnun fékk upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem hefur eftirlit með fyrirtækinu.

Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar.

  • Vörumerki: Universal Nutrition
  • Vöruheiti: The True Original – Animal Pak – dietary supplement
  • Geymsluþol: Engin geymsluþolsmerking
  • Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
  • Lotunúmer: Öll lotunúmer
  • Strikamerki: 039442030115 (vara í áldós) / 039442032218 (vara í plastdollu)
  • Nettómagn: 44 pakkar (áldós/vara í töfluformi, hver pakki inniheldur 11 töflur) / 387 g (plastdolla /vara á duftformi)
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Framleiðandi: Universal Nutrition, New Brunswich, New Jersey
  • Framleiðsluland: Bandaríkin
  • Dreifing: Prótín.is vefverslun

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga. Nánari upplýsingar veitir Prótín.is, Síðumúla 15 (bakatil), 108 Reykjavík.