Vanmerktir ofnæmisvaldar í ítölskum Rana sósum

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir skelfiski, fiski, mjólk, hnetum, selleríi, byggi eða hveiti við þremur Rana sósum frá K. Karlssyni ehf.  Sósurnar kunna að innihalda þessa ofnæmisvalda án þess að þeir séu merktir á vörunni eða merkingar eru á ítölsku. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Innköllunin á við allar framleiðslulotur/best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: RANA
  • Vöruheiti: Rana pesto, Rana sveppasósa, Rana ostasósa
  • Framleiðandi: Giovanni Rana
  • Innflytjandi: K. Karlsson-Bakkus ehf.
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Allar framleiðslulotur/-dagsetningar
  • Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Nettó, Extra24 og Melabúðin.

Tekið er fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi fyrir tilgreindum ofnæmisvöldum. Hægt er að skila sósunum til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá fyrirtækinu á netfanginu soludeild@kallik.is.

Ítarefni

Skoða á mast.is