
Bingóvinningur frá Betri vörum
Kaffi Klara stendur fyrir bingói sem haldið verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga föstudaginn 1. mars.
Allur ágóði af sölu bingóspjalda rennur í styrktarsjóð Ingólfs Frímannssonar og fjölskyldu. Ingólfur veiktist alvarlega á Tenerife og liggur þar á gjörgæslu, hann á fyrir höndum langa sjúkrahúslegu og dvelur fjölskyldan hjá honum ytra.
Ólafsfirðingar hafa tekið höndum saman með margvíslegum hætti til að styðja við bakið á fjölskyldunni og er bingóið einn liður í því.
Að sögn Idu Semey hafa veglegir vinningar verið að streyma í hús og mikill áhugi fyrirtækja og einstaklinga að gefa vinninga. Má þar upp telja slökkvitæki, gjafakort, matarkörfur, peninga, baðsalt, harðfisk og fl.
Vegna mikillar aðsóknar og áhuga á bingóinu hefur verið ákveðið að halda það í Hrafnarvogi, húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga.
Bingóspjöldin kosta 500 kr. stk. og hefst bingóið kl. 19:30.
Í boði verur kaffi, gos, kökubitar og fl. til að narta í á góðu verði.
Laugardaginn 2. mars býður Höllin, Veitingahús í Ólafsfirði upp á ljúfengar pizzur, rennur allur ágóði af sölunni inn á styrktarreikning Ingólfs og fjölskyldu. Ætlar starfsfólk Hallarinnar og eigendur að gefa alla vinnu þennan dag. Opið verður frá kl. 16:00 – 23:00.
Söfnunarreikningur fjölskyldunnar er: 0347- 03 -5171 kt. 0301803219.

Eins og sjá má verða veglegir vinningar í boði.

Eins og sjá má tekur samfélagið heils hugar þátt í að standa við bakið á fjölskyldu Ingólfs. Þetta innlegg er frá Sólveigu Önnu Brynjudóttur.
Forsíðumynd: Guðný Ágústsdóttir
Myndir í frétt: aðsendar