Olga Vocal Ensemble kemur fram í Tjarnarborg Ólafsfirði föstudaginn 30. júlí kl. 20:00.

Hægt er að kaupa miða hér -> https://tix.is/is/event/11075/aurora-olga-vocal-ensemble/

“Í ljósi aðstæðna hvetjum við gesti til að bera grímur á meðan á tónleikum stendur og passa vel upp á persónubundnar sóttvarnir. Við erum gríðarlega spenntir að syngja í Tjarnarborg og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.”

Þema tónleikanna er Aurora, norðurljósin mála fallegar myndir á himnum á dimmasta tíma ársins, eitthvað sem Olga vill gera með röddum sínum. Valin voru uppáhalds lög meðlima Olgu, lög sem vekja þeim innblástur og lög sem vekja upp góðar minningar, lög sem meðlimir hópsins elska að syngja og hlusta á. Á þessum erfiðu tímum langaði hópnum að skapa eitthvað persónulegt, eitthvað sem tengir fólk saman þrátt fyrir þá einangrun sem margir hafa þurft að ganga í gegnum á árinu 2020 og verður hluti af lífi fólks árið 2021. 

Ljós í myrkrinu, fallegur samhljómur, því dimmari sem heimurinn verður, þeim mun skýrar sjást norðurljósin, ,,Aurora”. 

Lagalisti tónleikanna verður fjölbreyttur og má heyra klassísk verk, jazzlög yfir í yfirtónasöng saminn af meðlimum Olgu þar sem má líkja hljómnum sem heyra má við það þegar norðurljósin mála falleg verk á himnum.

Olga Vocal Ensemble er sönghópur sem hefur verið starfræktur síðan árið 2012 en hópurinn hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi sumarið 2013 og hefur heimsótt Ísland á hverju ári síðan þá, að undanskildu árinu 2020. Hópurinn er skipaður 5 strákum, 3 eru búsettir í Hollandi og 2 eru búsettir á Íslandi. í Olgu eru Hollendingarnir Jonathan Ploeg og Arjan Lienaerts, Englendingurinn Matthew Lawrence Smith, rússneski Bandaríkjamaðurinn Philip Barkhudarov og Íslendingurinn Pétur Oddbergur Heimisson.

Olga hefur gefið út 3 geisladiska, fyrsti diskurinn kom út árið 2012, Vikings kom út árið 2016 og It’s a Woman’s World kom út árið 2018. Sumarið 2021 kemur síðan út 4. diskur hópsins, Aurora,  en hann verður einnig fáanlegur á vínylplötu.

Forsíðumynd: Felipe Pipi