Óskað er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2021. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið; umhverfisstjori@hunathing.is fyrir 16. ágúst nk.

Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu.