Barnshafandi konum á Norðurlandi býðst að koma í fyrri bólusetningu með Pfizer bóluefni í þessari eða næstu viku. Mælt er með að bólusetning fari fram eftir að fyrstu 12 vikum meðgöngu er lokið.

Sjá nánari upplýsingar hér í hlekk.

Hlekkur Embætti Landlæknis um Bólusetningar barnshafandi kvenna við COVID-19

Bólusetningin fer fram á eftirtöldum stöðum og eru barnshafandi konur velkomnar óháð búsetu á Norðurlandi:

  • Fimmtudaginn 29. júlí  kl: 16 í Fjölbrautskólanum á Sauðárkróki.

Bóka þarf tíma í síma 432 4236.

  • Föstudaginn 30. júlí kl: 13 á heilsugæslunni á Siglufirði.

Bóka þarf tíma í síma 460 2100.

  • Fimmtudaginn 5. ágúst á Slökkvistöðinni á Akureyri kl: 13-14.

Skráning fer fram á staðnum.

Nauðsynlegt er að hafa með sér skilríki og við minnum á grímuskyldu. 

Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allar þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.