Grunnskóli Fjallabyggðar keppti þann 26. apríl í 2. riðli í Skólahreysti 2023 og hafnaði í 2. sæti. Með þeim í riðli voru skólar frá Norðurlandi.

Liði Grunnskóla Fjallabyggðar gekk afar vel og fékk samtals 46,5 stig og endaði í 2. sæti á eftir Lundarskóla sem var með 47 stig. Einungis hálfu stigi munaði á þessum tveim liðum. Dalvíkurskóli var með 43 stig og fagnaði 3. sætinu. 

Keppt var í upphífingum, dýfingum, hraðaþraut, armbeygjum og hreystigreip. 

Keppendur frá Grunnskóla Fjallabyggðar voru þau, Hlynur Freyr Ragnarsson og Svava Rós Kristófersdóttir í hraðabraut, Viktor Máni Pálmason í upphífingum og dýfum og  Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir sem keppti í armbeygjum og  hreystigreip. Til vara voru þau Silja Rún Þorvaldsdóttir og Dawid Saniewski.

Myndi: af vef Rúv.