Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Häagen-Dazs vanilluís sem Natan & Olsen flytja inn. Ástæða innköllunar er að það greindisti ólöglegt varnarefni, etýlen oxíð, í vanilluextrakti sem er eitt af innihaldsefnum í ísnum. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlitsins í Reykjavík innkallað vöruna af markaði.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Häagen-Dazs
- Vöruheiti: Vanilla
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 6.10.2022, 3.3.2023, 29.3.2023
- Nettómagn: 460 ml
- Strikamerki: 3415581101928
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Framleiðandi: General Mills
- Innflutningsfyrirtækið sem innkallar vöru: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Hagkaup (Akureyri, Eiðistorgi, Garðabæ, Kringlan, Skeifan, Smáralind, Spöng), Pétursbúð ehf., Hlíðarkaup Sauðárkróki, Skagfirðingabúð, Extra (Akureyri, Barónsstíg, Keflavík), Heimkaup og Melabúðin.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Nathan & Olsen
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík
- Innkallar á heimasíðu Matvælastofnunar