Matvælastofnun varar við tveimur tegundum af Wasa hrökkbrauði. Hrökkbrauðið inniheldur varnarefnið etýlen oxíð sem er ekki leyfilegt í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið SS, sem flytur inn vöruna, hefur innkallað hana með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi vörutegundir og framleiðslulotur:
- Vörumerki: Wasa
- Vöruheiti: Sesam & Havssalt
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.8.2021
- Lotunúmer: S01086800
- Strikamerki: 7300400111119
- Nettómagn: 290 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Barilla/Wasa
- Framleiðsluland: Svíþjóð
- Dreifing: Fjarðarkaup, Aðföng (Hagkaup), Verslun Einars Ólafssonar, Melabúðin, Hlíðarkaup, Ikea, jólagjafasala til fyrirtækja
- Vörumerki: Wasa
- Vöruheiti: Sesam Gourmet
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.1.2021, 30.4.2021, 30.6.2021
- Lotunúmer: G01044710, G01045630, G01046190
- Strikamerki: 7300400481502
- Nettómagn: 220 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Barilla/Wasa
- Framleiðsluland: Svíþjóð
- Dreifing: Hlíðarkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, gjöf til mæðrastyrksnefndar, jólagjafasala til fyrirtækja