Matvælastofnun vekur athygli á innköllun vegna ólöglegra innihaldsefna í 4 tegundum af pólskum fæðubótarefnum FA Fitness Authority sem Bodyzone flutti inn. Vörurnar innihalda óleyfilegt innihaldsefni Choline alfoscerate (a-GPC). Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) innkallað vörurnar.
Tilkynning um fæðubótaefnin bárust til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: FA Fitness Authority
- Framleiðandi: Fitness Authority
- Framleiðsluland: Pólland
- Innflytjandi og söluaðili: Bodyzone ehf, Bæjarlind 6.
Vara 1.
- Vöruheiti: Nalpalm Pre Contest Pumped 350 g, Dragon fruit.
- Best fyrir: 11.2023
- Lotunúmer: NPP211119DFR
- Nettómagn: 350g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
Vara 2.
- Vöruheiti: Napalm Pre Contest Pumped stimulant free 350 g Lychee og Mango-lemon 350g
- Best fyrir: 11.2023/02.2024
- Lotunúmer: NPS211115LYC/NPS220224MLE
- Nettómagn: 350g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
Vara 3.
- Vöruheiti: Skull Labs Angel Dust Citrus-Peach
- Best fyrir: 11.2024
- Lotunúmer: SAD221117CPE
- Nettómagn: 270g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
Vara 4.
- Vöruheiti: Plasma Core Orange Mango
- Best fyrir: 03.2024
- Lotunúmer: CPL220301OMA
- Nettómagn: 350g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
Neytendur sem keypt hafa vöruna eiga ekki að neyta hennar, farga eða skila henni gegn endurgreiðslu. Framleiðandi hefur komið með yfirlýsingu að vörur framleiddar árið 2023 eru ekki með ólöglega innihaldsefnið en er en merkt á innihaldlýsingu.Vörurnar verða endurmerktar.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Bodyzone ehf.
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirlitinu um innköllun á vörum 1-4:
- https://www.heilbrigdiseftirlit.is/article/innkollun-a-polsku-f%C3%A6%C3%B0ubotaefni-core-plasma-orange
- https://www.heilbrigdiseftirlit.is/article/innkollun-a-polsku-f%C3%A6%C3%B0ubotaefni-pre-contest-pumped
- https://www.heilbrigdiseftirlit.is/article/fyrirt%C3%A6ki%C3%B0-bodyzone-hefur-innkalla%C3%B0-voruna-skull-labs
- https://www.heilbrigdiseftirlit.is/article/fyrirt%C3%A6ki%C3%B0-bodyzone–hefur-innkalla%C3%B0-voruna–napalm