Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum framleiðslulotum af Til Hamingju Morgungulli og Til Hamingju Granóla frá Nathan og Olsen ehf. Ólöglegt varnarefni (etýlen oxíð), sem bannað er að nota í matvælum, greindist í sesamfræjum sem notuð eru í framleiðslu á innkölluðu vörunum. Fyrirtækið innkallar nú vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Til hamingju
- Vöruheiti: Granóla Morgungull
- Nettómagn: 450g
- Best fyrir dagsetningar: 30.05.2021
- Vörumerki: Til hamingju
- Vöruheiti: Granóla
- Nettómagn: 450g og 1kg
- Best fyrir dagsetningar: 27.08.2021 og 01.09.2021
- Framleiðandi Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Hlíðarkaup, Nettó, Melabúðin Krambúðin, Kjörbúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Verslunin Kassinn, Kjöthöllin, Samkaup Strax, Kaskó, Smáalind/Fjölval, Pétursbúð, Rangá, Hjá Jóhönnu ehf, Verslunin Einar Ólafsson og Verslunin Borg.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreindar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim til Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Nathan & Olsen
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Ólöglegt varnarefni í sesamfræjum og granóla – innköllun 22.10.20
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook