Matvælastofnun varar við tveimur tegundum af Clearspring sesamolíu. Olíurnar innihalda varnarefnið etýlen oxíð sem er ekki leyfilegt í matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið Icepharma, sem flytur inn vöruna, hefur innkallað hana með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Innköllunin nær ekki til 250 ml sesamolíu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vörurnar í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Clearspring
- Vöruheiti: Cl.Sp Sesame Oil 500 ml 45602760
- Strikamerki: 5021554981534
- Nettómagn: 500 ml
- Best fyrir dagsetning: 3.7.2021
- Lotunúmer: N029
- Innflytjandi: Icepharma, Lyngháls 13
- Dreifing: Fjarðarkaup og Veganbúðin
- Vörumerki: Clearspring
- Vöruheiti: Cl.sp Toasted Sesame Oil 500 ml 45602741
- Strikamerki: 5021554982432
- Nettómagn: 500 ml
- Best fyrir dagsetning: 20.9.2021
- Lotunúmer: N108
- Innflytjandi: Icepharma, Lyngháls 13
- Dreifing: Fjarðarkaup og Veganbúðin