Það er nú meira hvað nýja fuglabókin hans Sigga Ægis er glæsileg – og læsileg!Í bókinni eru allir íslenskir varpfuglar skoðaðir í þjóðtrú landsmanna og erlendri í afar vönduðu máli. Mikill fjöldi glæsimynda og allt sett upp með þeim hætti að vel fer í hendi og fallegt er á að líta.

“Hvaða fugli sóttust galdramenn eftir að komast í tæri við vegna sambands hans við þann í neðra? Hvað boðaði það á Horni í Sléttuhreppi ef lómurinn stóð á öðrum fæti og skrækti? Hvernig áttu hrafnarnir, sem áttu bústað í Heklu, að vera í útliti?”

Endalaus fróðleikur og skemmtan. Og ekkert annað en hrósyrði fær bókin í öllum umfjöllunum.

Í einni þeirra er fyrirsögnin: “Mögnuð bók.”

Í annarri, frá Svíþjóð: “Congratulations on this masterpiece.”

Í þriðju segir m.a.: “mikið þrek­virki sem eykur við bók­menn­ingu okkar Íslend­inga og bætir svo um munar í skiln­ing­inn á sam­búð manns og nátt­úru.

Í hinni fjórðu: “ein athyglisverðasta bókin sem nú kemur á bókamarkaðinn … Sr. Sigurður hefur einfaldlega unnið afrek sem íslensk þjóð má þakka honum fyrir.”

Og …: “auðlesinn og stórfróðlegur doðrantur og sómir sér vel í bókahillum náttúruelskandi veiðimanna.”

Jakob S Jónsson, bókmenntagagnrýnandi Kjarnans, skrifar að “Sig­urður hafi gert efn­inu eins nákvæm skil og unnt er […]  bók sem kyn­slóðir geta skoðað saman – það getur tekið margar ljúfar rökk­ur­stundir að lesa bara um mús­arrind­il­inn og velta fyrir sér örlögum hans og þá eru allir hinir eftir – ekki síður for­vitni­legir og spenn­andi verð­andi kunn­ingjar, þátt­tak­endur í því líf­ríki sem við öll gistum og eigum að þekkja.

https://kjarninn.is/folk/2020-12-14-islenskir-fuglar-og-thjodtru-fyrir-rokkurstundir/

Samantekt: ÖK