Færsla sem Jón Vigfús Guðjónsson birti á facebooksíðu sinni um helgina hefur vakið mikla athygli fyrir þau skilaboð sem hann sendir ökumönnum.

Trölli.is ákvað að birta færsluna í heild og má lesa hana hér að neðan.


“Góðan daginn öllsömul.

Ég heiti Jón og ég er alkahólisti en hef verið án áfengis í 27 og hálft ár og verð vonandi áfram. Ég bið ykkur að hugsa um það sem ég skrifa hér vegna þess að það skiftir okkur öll máli.

Ölvunarakstur er dauðans alvara og hefur því miður drepið marga í umferðinni. Nú fer í hönd eftir tæpa viku stærsta umferðarhelgi á Íslandi og margir munu hafa áfengi um hönd sem oftast er bara allt í góðu lagi.

Ég er margsekur og dæmdur nokkrum sinnum fyrir þennan glæp sem ölvunarakstur er. Í dag þakka ég guði fyrir að hafa aldrey orðið öðrum að skaða eða bana með þessu.

Hinsvegar var það aldrey mín ætlun að keyra undir áhrifum málið er það að ég var ekki sjálfráður gerða minna undir áhrifum var í minnisleysis ástandi og stórhættulegur í umferðinni það er auðvitað engin afsökun en staðreynd þó.

Ég var farinn að undirbúa mig þegar ég fékk mér í glas td með því að biðja einhvern annan að geima lyklana af bílnum meðan ég var ófær um að keyra.

Markmið mitt með þessum skrifum er að vekja athygli á því hvað ölvunarakstur er hættulegur og oft eru gerendur ekki sjálfráðir gerða sinna í neislunni.

Stöndum öll saman að fylgjast með og gera ráðstafanir ef á þarf að halda.

Ef einhver verður vitni af manneskju setjast undir stýri ekki í ökuhæfu ástandi endilega gerið ráðstafanir annaðhvort tala við viðkomandi eða lögreglu.

Okkur kemur þetta öllum við.

Svo óska ég öllum yndislegrar verslunarmannahelgar hvar sem þið verðið og endilega komum öll heil heim.

ps þið megið endilega deila þessum pósti því ef að það gæti stoppað 1 frá því að aka undir áhrifum þá er mínu takmarki náð.

Kær kveðja

Jón Vigfús Guðjónsson”.

Mynd/pixabay