Á næsta ári verður samið um lífskjör Íslendinga í fjölda kjarasamninga. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA rýna í stöðu og horfur á vinnumarkaði og ræða svigrúm til launahækkana næstu árin á opnum fundum hringinn í kringum landið.

Í vikunni verður boðið til funda á Norðurlandi á miðvikudag og fimmtudag þar sem allir eru velkomnir.

Vinsamlegast skráið þátttöku með því að smella á viðkomandi fundarstað – boðið verður upp á létta hádegishressingu á Akureyri og Sauðarkróki og síðdegiskaffi á Siglufirði.

Tölum saman er yfirskrift fundanna og eru allir velkomnir.

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem starfa á grunni atvinnugreina. Yfir 2.000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði rúmlega 100 þúsund manns.

 

Frétt og mynd: Samtök atvinnulífsins