Opnað fyrir umsóknir í Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

 Þann 11.febrúar var opnað fyrir umsóknir í nýjan sjóð Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Stofnun sjóðsins, sem fengið hefur nafnið Lóa, er liður ráðuneytisins í að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Heildarfjárhæð sem úthlutað verður 2021 er 100 milljónir króna og er hámarksstyrkur hvers verkefnis 20 milljónir króna. Úthlutað er til 1 árs í senn og skulu verkefnin miða við það.

Hlutverk styrkjanna:

  • Auka við nýsköpun á landsbyggðinni
  • Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni
  • Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum einstakra svæða á landsbyggðinni

Umsóknarfrestur er til 9. mars 2021 og skal umsóknum skilað rafrænt á eyðublaðavef stjórnarráðsins.
Hér er hægt að nálgast reglur sjóðsins. Hægt er að bóka ráðgjöf hjá atvinnuráðgjöfum SSNE sem geta aðstoðað við umsóknarskrif.