Nú er sá árstími sem að fuglar eru að reyna að koma upp ungum sínum.
Kvartað hefur verið yfir því að margir ungar lendi í kattarkjafti.
Kattaeigendur eru því beðnir um að fylgjast vel með köttum sínum og sjá til þess að þeir séu merktir og með bjöllur um hálsinn. Minnt er á að í 6. gr. samþykktar um hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra kemur fram að eigendum og umráðamönnum katta beri að taka tillit til fuglalífs á varptíma og takmarka eftir atvikum útiveru katta, m.a. að næturlagi.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.