Að vera eða vera ekki með grímu?

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem felur í sér verulegar tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum tók gildi í gær. Með reglugerðinni hefur m.a. verið slakað til muna á kröfum um grímuskyldu sem hefur m.a. verið felld niður í verslunum og á vinnustöðum. Þó er skylt að bera grímu við tilteknar aðstæður.

Til leiðbeiningar hefur heilbrigðisráðuneytið tekið saman spurningar og svör um grímunotkun, hvenær þurfi að bera grímu og hvenær ekki, sem fólk er hvatt til að kynna sér.

Mynd/aðsend