Félagsmiðstöðin 60+ er opin alla miðvikudaga í sumar kl. 14:00 – 16:00 í dreifnámsaðstöðu í Félagsheimilinu á Hvammstanga, nema annað sé tekið fram.

Boðið er upp á kaffi og kleinur/kex, spjall, spil, smá gönguferð eða leiðsögn.

Dagskrá fyrir næstu miðvikudaga:

8. júlí  Flemming Jessen kemur í spjall, púttæfing og kannski verður spiluð félagsvist?
15. júlí Eva-Lena Lohi, sjúkraþjálfi: Gönguferðir og notkun göngustafa, boðið upp á mismunadi vegalengdir/hraða. Ekki er nauðsynlegt að eiga göngustafi en þau sem eiga eru beðin að taka þá með sér.
22. júlí Eva-Lena Lohi, sjúkraþjálfi: Gönguferðir og teygjur.
29. júlí Pálína F. Skúladóttir verður með stólajóga sem allir geta tekið þátt í.
Harpa Ósk Lárusdóttir verður í Nestúni á milli kl. 13-17 og áhugasamir geta fengið að vefa við vefstólinn sem er staðsettur þar.
5. ágúst Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir kynnir fyrir okkur mismunandi handavinnu (refil-, flettu-, herp-, hvít eða svartsaum, dúkaprjón eða prjónað skraut).
12. ágúst Pálína F. Skúladóttir verður með stólajóga fyrir alla og slökun. Gjarnan má taka með sér létt teppi.
19. ágúst Handavinna/spil (eftir að ákveða).
26. ágúst Endum sumarið með vöfflukaffi og jafnvel tónlist?