Á vef ASÍ segir að atvinnurekandi getur ekki einhliða og án samþykkis lauamanns ákveðið að hann taki orlof sitt meðan uppsagnarfrestur er að líða. Dómafordæmi hafa styrkt verulega réttarstöðu starfsmanna í þessu efni, nú síðast þann 13.12 2019. Þá sló Landsréttur því föstu að þrátt fyrir að starfsmaður geti átt 6 mánaða uppsagnarfrest geti atvinnurekandiekki einhliða ákveðið orlofstöku meðan sá frestur líður.

Sjá nánar um „Orlof og uppsögn“ á vinnuréttarvef ASÍ.

Af: ein.is