Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 1. september, kl. 8 að íslenskum tíma.
Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Studioi 7 á Englandi.
Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.