Skíðafélag Ólafsfjarðar verður með öskudagsskemmtun í íþróttahúsinu í Ólafsfirði í dag, öskudag, 26. febrúar kl. 14:15 – 15:15.

Kötturinn verður sleginn úr tunnunni og þrautabraut verður í boði.

Rúta fer frá Siglufirði (grunnskólanum) kl. 13:45 og frá Ólafsfirði (grunnskólanum) kl. 15:25.

Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.