Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir er á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 18. apríl kl. 8 að íslenskum tíma.
Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi.
Oskar ætlar að spila þægilega tónlist, bæði gamla og nýja, til þess að undirbúa ykkur fyrir páskahelgina. Hann kíkir líka á veðurspánna fyrir helgina og helstu fréttir af forsíðum blaðanna, og morgunleikfimin verður á sínum stað, eins og alltaf.
Endilega stillið á FM Trölla á morgun frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.