Fimmtudaginn 26. október, var formleg opnun á „Píetaskjóli“ á Ísafirði. Píeta samtökin hafa aðstöðu í geðræktarmiðstöð Vesturafls á Suðurgötu 9, Ísafirði og taka viðtölin þar í hlýlegu viðtalsherbergi sem samtökin hafa aðgengi að. 

Í móttökunni voru til staðar fulltrúar frá Píeta samtökunum, heilbrigðisþjónustu, forsvarsmenn sveitarfélaga og ýmsir aðrir fulltrúar úr stjórnsýslu og félagasamtökum. Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta og Einar Hrafn Stefánsson markaðs- og kynningarstjóri Píeta voru með kynningu á starfsemi Píeta og veittu Kiwanisklúbbnum Básum og Veigu Grétarsdóttur Suleburst viðurkenningu fyrir flott starf í þágu samtakanna á Vestfjörðum. Jorgo Vougiouklakis læknir og fagaðili Píeta og bæjarstjóri Ísafjarðar Arna Lára Jónsdóttir klipptu á gulan borða í tilefni opnunarinnar. 

Eftir opnun Píeta árið 2018 hefur eftirspurn eftir þjónustu samtakanna aukist gríðarlega. Opnun Píetaskjólsins á Ísafirði er liður í því að breiða út þjónustu Píeta eins og unnt er en er þetta fjórða athvarf sem opnað verður á Íslandi en það fyrsta á Vestfjörðum. 
Píeta samtökin veitir hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra. Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur til boða öllum þeim sem náð hafa átján ára aldri og viðtölin eru fyrir fólk með sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. 

Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og hægt er að bóka viðtöl í síma 552-2218 alla virka daga milli 09:00 – 16:00.