Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, sendir þáttinn út beint frá Studio 7 á Englandi, og hann ætlar að bjóða hlustendum FM Trölla upp á frábæra tónlistarblöndu þar sem ægir saman bæði gömlum og nýjum með flytjendum víðsvegar að úr heiminum.

Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru ABBA, Ásgeir, Devo, Emilia Tarrant, Laddi, Megan McKenna, Retro Video Club, og Ziggy Alberts.

Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því.

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is