Plötuspilarinn verður í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi í dag kl. 17.
Þá mun Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, bjóða hlustendum FM Trölla upp á einstaka tónlistarblöndu þar sem fara saman fortíðarperlur og framtíðarsmellir.
Þátturinn verður með alþjóðlegu ívafi að þessu sinni og á meðal þeirra sem að koma við sögu eru þýska raf-rokk sveitin ANTIAGE, kanadíska indí-rokk sveitin Grand Splendid, norski sveitasöngvarinn Kid Norkjen, íslensku tónlistarmennirnir Friðrik Dór og Pétur Kristjánsson, ásamt Bruno Mars, Kiss og Stuðmönnum.
Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því.
Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is