Ræsting í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikhólum Ólafsfirði. – Skilafrestur verðtilboða framlengdur til kl. 13:00 föstudaginn 17. febrúar.

Fjallabyggð óskar eftir verðtilboði í verkið: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.

Verkið felst í reglulegri ræstingu og sumarhreingerningu á starfsstöð Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði (Leikhólum) samkvæmt lýsingu. 

Heildarfjöldi fermetra í verðkönnun er 379,2 m².

Reiknað er með að verktími hefjist þann 1. apríl 2023 og að gerður verði verksamningur um verkið til 21 mánaða (1,75 ár), eða til 31. desember 2024, með möguleika á framlengingu til eins árs. 

Vettvangsskoðun er eftir samkomulagi við skólastjóra leikskólans í gegnum netfangið olga@fjallaskolar.is eða síma 464-9242.

Um er að ræða rafræna verðkönnun. Gögn má nálgast hjá deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála á netfanginu  rikey@fjallabyggd.is.

Frestur til að skila inn verðtilboði ásamt tilskildum fylgigögnum er framlengdur til föstudagsins 17. febrúar 2023 kl. 13:00. Verðtilboði og fylgigögnum skal skilað  með rafrænum hætti á netfangið rikey@fjallabyggd.is.

Verðtilboð skal auðkennt svo:

  • „FJAL-2023-1: Verðkönnun: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði“


Opnunartími tilboða verður föstudagur 17. febrúar 2023 kl. 13:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir
Netfang: rikey@fjallabyggd.is
Sími: 464 9100