Ólöglegt varnarefni í núðlum

Matvælastofnun varar við neyslu á  tveimur framleiðslulotum af Jin Ramen spicy núðlum sem fyrirtækið Lagsmaður ehf. flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota það í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.

Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður

Innköllun á einungis við eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Ottogi
  • Vöruheiti: Jin Ramen Spicy noodles 120g
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
  • Best fyrir: 7.07.2022 og 10.08.2022
  • Framleiðsluland: Kórea
  • Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
  • Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur

Ólöglegt varnarefni í núðlum með kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Indo Mie special chicken noodles sem Lagsmaður flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er ólöglegt að nota það við matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað núðlurnar í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Indo Mie
  • Vöruheiti: Indo Mie special chicken noodles 75g
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
  • Best fyrir: 29/3/2022
  • Framleiðsluland: Indonesia
  • Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
  • Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur 

Neytendum sem keypt hafa aðra hvora vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í verslun fiska.is á Nýbýlavegi í Kópavogi.

Ítarefni