Rafmagnslaust varð á Siglufirði klukkan 14:54 í dag, 12. febrúar, samkvæmt tilkynningu frá Rarik.  Trolli.is hafði samband við Rarik. Ekki liggur fyrir hvað olli biluninni, en bilanaleit stendur yfir og er í fullum gangi.

Í tilkynningu sem birt var á vef fyrirtækisins kemur fram að atvikið sé skráð frá klukkan 14:54 og að áætlað sé að rafmagn komist aftur á eigi síðar en klukkan 19:00, að því gefnu að bilanaleit gangi samkvæmt áætlun.

Rarik biður þá sem kunna að hafa upplýsingar sem gætu nýst við bilanaleit að hafa samband við stjórnstöð í síma 528 9000.

Á vef Rarik, rarik.is/rof, má sjá kort sem sýnir það svæði sem talið er að bilunin nái til. Myndin sem fylgir er skjáskot af kortinu eins og það birtist þar.

Staða málsins er samkvæmt upplýsingum frá Rarik í gangi og verður fylgst með framvindu mála.