Rafmagnslaust verður á vestanverðu Vatnsnesi í dag, norðan Sauðár frá kl. 11:00 til 16:00 og milli Hvammstanga og Sauðár frá kl 13:00 til 16:00 vegna tengingar á háspennustreng.

Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar.

Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof