Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við sveitarfélögin hófst í gær og lýkur sunnudaginn 9. febrúar kl. 12:00.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 10. febrúar. 

Hvernig á að greiða atkvæði?
Til að greiða atkvæði með rafrænum hætti smellir viðkomandi á slóðina hér að neðan og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Eftir innskráningu birtist atkvæðaseðilinn og getur viðkomandi þá greitt atkvæði.

Kjósa

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði.

Starfsgreinasambandið hefur útbúið upplýsingasíðu þar sem sjá má hvað nýr kjarasamningur við sveitarfélögin inniheldur. Allir félagsmenn sem vinna undir þessum samningi eru hvattir til aað kynna sér hann vel. Á síðunni má m.a. finna kynningarbækling sem sendur er í pósti á alla félagsmenn á kjörskrá og samninginn í heild fyrir árin 2020 til 2023, þ.e. bókin í heild

Heimild: ein.is