Sápuboltinn í Ólafsfirði er haldinn um helgina 19. -21. júlí 2024.

Sápuboltinn er bráðskemmtileg hátíð sem hentar öllum aldurshópum. Hver elskar ekki að horfa á aðra detta, klæða sig í búning og hafa gaman í góðra vina hópi.

Í ár var margt um manninn þrátt fyrir svala norðanátt og létu keppendur það ekki á sig fá og skemmtu sér konunglega sem og áhorfendur.

Andri Hrannar Einarsson brá sér yfir á Ólafsfjörð og tók þessar litskrúðugu myndir þegar leikar stóðu sem hæst.

Myndir/Andri Hrannar Einarsson