Fjárgöngur hefjast í Fjallabyggð föstudaginn 9. september og réttað er á fjórum stöðum stöðum: Siglufjarðarrétt, Héðinsfjarðarrétt, Ósbrekkurétt og Reykjarétt.
Réttað verður í Siglufjarðarrétt föstudaginn 9. september og laugardaginn 10. september.
Göngur og réttir í Fjallabyggð árið 2022 verða eftirfarandi:
- Siglufjarðarrétt í Siglufirði: Föstudaginn 9. september og laugardaginn 10. september.
- Héðinsfjarðarrétt í Héðinsfirði: Sunnudaginn 11. sept.
- Ósbrekkurétt í Ólafsfirði: Föstudaginn 16. september og laugardaginn 17. september.
- Reykjarétt í Ólafsfirði: Föstudaginn 30. september.
Rétt er að vekja athygli á því að dagsetningar gætu breyst ef veðurfar leyfir ekki fjárrekstur.
Sjá nánar um göngur og réttir víðsvegar á landinu: HÉR