Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í Húnaþingi vestra í Vatnsneshólfi. Síðast greindist riða í hólfinu árið 2015. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Vatnshóli í Húnaþingi en á bænum eru nú um 925 fjár. Bóndinn hafði samband við Matvælastofnun sem tók sýni úr kindinni og sendi á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest.

Búið er í Vatnsneshólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á einu búi á undanförnum 20 árum. Síðast greindist riða á bænum árið 1999.

Ekki er talið að þetta tilfelli tengist riðutilfellunum í Tröllaskagahólfi þar sem riða greindist á fimm bæjum fyrir áramót.

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.