Um kl.22.00 í gærkvöldi, barst tilkynning til lögreglunnar á Norðurlandi vestra, þess efnis að hópbifreið á suðurleið, hefði lent utan vegar skammt sunnan við Víðihlíð í Víðidal.

Í bifreiðinni voru 31 með ökumanni, farþegar voru allir ungmenni á aldrinum 16-19 ára. Bifreiðin var á hjólunum allan tímann og enginn meiddist við óhappið.

Vel gekk að ná henni upp með aðstoð björgunarsveita og bónda af nálægum sveitabæ á stórri dráttarvél. Fólkið fór í gistingu í nágrenninu og ætla að bíða með áframhald ferðar til morguns.

Þess má geta að mikil hálka er á vegum á þessum slóðum og mjög hvasst og eru ökumenn beðnir að sýna varúð og aðgætni.

 

Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra

Af facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra