Rýmingaræfing fór fram í Grunnskóla Húnaþings vestra, þriðjudaginn 1. október og gekk hún ákaflega vel.

Mikilvægt er að æfa viðbrögð komi upp eldur eða annað sem kallar á skjóta rýmingu. „Útkallið“ barst 10:17 og þegar komið var á staðinn um 10:21 voru síðustu starfsmenn á leið úr byggingunni.

Eftir talningu nemenda á sparkvelli skólans var útkalli lokið 10:26. Allar tölur stemmdu og er það ákaflega jákvætt hversu lítinn tíma tók að rýma skólann.

Vert er að taka fram að um fyrirfram skipulagða æfingu var að ræða og seinna í vetur munum við æfa aftur án vitneskju nemenda og starfsmanna skólans.

Mynd/Húnaþing vestra