Félagsmálaráð í Húnaþingi vestra óskar eftir tilnefningum vegna samfélagsviðurkenninga fyrir árið 2022.

Félagsmálaráð Húnaþings vestra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um aðila til samfélagsviðurkenninga fyrir verk sín eða störf í þágu samfélagsins.

Allir koma til greina, jafnt einstaklingar, fyrirtæki sem og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd.

Tilnefningar skulu berast fjölskyldusviði Húnaþings vestra með rökstuðningi. Hægt er að senda inn nafnlausar tilnefningar.

Tilnefningar skulu berast til sviðsstjóra fjölskyldusviðs á netfangið:

siggi@hunathing.is eða með bréfi í Ráðhúsið merkt; Samfélagsviðurkenning 2022. Tilnefningar skulu berast fyrir mánudaginn 20. mars 2023.