Mikill viðbúnaður er vegna óveðursins sem fram undan er út um allt land. Í dag funduðu Almannavarnir aftur með sérfræðingum Veðurstofunnar, viðbragðsaðilum, ábyrgðaraðilum raforku, fjarskipta og samgangna. Einnig voru á fundinum fulltrúar úr aðgerðastjórnun almannavarna um land allt.  Eins og í gær var farið yfir veðurspár og til hvaða viðbúnaðar þarf að grípa þegar óveðrið skellur á.

Miklar líkur eru á foktjóni og ófærð innan hverfa.  Eins og í gær þá er fólk hvatt til þess að ganga vel frá lausum munum og verktakar beðnir að ganga vel frá framkvæmdasvæðum.  Vegagerðin hefur ákveðið að loka vegum vegna veðursins, hægt er að fylgjast með lokunum á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Foreldrar eru beðnir að fylgast með hvernig skólahaldi verður háttað, nú þegar hafa einhverjir skólar ákveðið að hafa lokað á morgun.  

Eins og fram hefur komið þá hefur Veðurstofa Íslands fært veður viðvörun sína upp á rautt fyrir höfuðborgarsvæðið. Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri, 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Hvassast í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins og á Kjalarnesi.

Vegna óveðursins þá hefur Ríkislögreglustjóri í samráði við alla lögreglustjóra á landinu ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna frá miðnætti í kvöld.  Almannavarnir halda áfram að fylgjast vel með og miðla upplýsingum til fjölmiðla um stöðuna í öllum landshlutum.


Almannavarnir geta virkjað þrjú stig í áætlun sinni: Óvissustig, hættustig og svo neyðarstig. Hættustig er virkjað þegar fólki, umhverfi eða byggð er ógnað, þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða. 

Hér er hægt að fylgjast með framvindu veðursins á vef Veðurstofu Íslands
Hér er hægt að fylgjast með vegum og lokunum hjá Vegagerðinni. 
Hér er hægt að fylgjast með ölduhæð á vef Vegagerðarinnar.