Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir á skólaárinu og frekari þróun Matsferils, nýrrar verkfærakistu til kennara og skóla, hefst.
Matsferill mun innihalda fjölbreytt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni fyrir grunnskólanemendur og kennara til að fylgjast með námsframvindu nemenda og bæta nám þeirra og námsárangur.
Fyrsta verkfæri Matsferils er nú þegar komið í gagnið í skólum landsins undir heitinu „Lesfimi“. Lesfimi eru valfrjáls hraðapróf í lestri sem hafa tekist vel og hefur þátttaka í þeim verið mikil hingað til. Þróuð verða fleiri matstæki á næstu misserum og standa vonir til þess að þau muni nýtast skólunum, kennurum og nemendum betur en samræmd könnunarpróf fyrri tíma.
Starfshópur um framtíðarstefnu um samræmt námsmat lagði til að samræmd könnunarpróf yrðu felld niður í núverandi mynd þar sem þau henti ekki sem mælikvarði á stöðu nemenda og skólakerfisins í heild. Prófin hafa ekki verið tengd innritun í framhaldsskóla í nokkur ár og eru ekki talin hafa verið nýtt sem skyldi til umbóta. Vægi þeirra hefur því minnkað töluvert. Þar að auki eru vísbendingar um að samræmd könnunarpróf nái ekki að prófa nemendur í ýmsum lykilþáttum aðalnámskrár grunnskóla.
Markmið Matsferils er að færa námsmat nær nemendum og kennurum og að Matsferillinn þjóni sem skólaþróunarverkfæri, aðgengilegt fyrir nemendur, kennara og skóla að nota eftir þörfum.
„Matsferill er ný verkfærakista til að leggja heildstætt mat á stöðu nemenda í skóla. Framtakið leysir af hólmi samræmdu prófin til að svara betur kalli tímans með nútímalegri viðmiðum, nemendum og skólum til hagsbóta. Framtíðin liggur í einstaklingsmiðuðu námi og góðu samstarfi við kennara við að þróa einstaklingsmiðuð verkfæri til að meta stöðu nemenda og skapa tækifæri til framþróunar,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Ætlunin er einnig að efla innra og ytra mat skóla, tengsl þess og starfsþróunar kennara og að efla útgáfu vandaðs og fjölbreytts náms- og kennsluefnis til framtíðar. Innra og ytra mat skóla og PISA – alþjóðleg könnun á hæfni 15 ára nemenda – eru talin heppilegri leið til að uppfylla eftirlitsskyldu mennta- og barnamálaráðuneytis og sveitarfélaga og gefa heildstæðari upplýsingar um stöðu nemenda og menntakerfisins en samræmd könnunarpróf.
Með þessum breytingum, samkvæmt tillögum starfshóps um framtíðarstefnu um samræmt námsmat, verður mælikvörðum ekki fækkað heldur fjölgar matstækjum og verkfærum og traust til skólanna eflist. Matsferill á að gefa nákvæmari mynd af stöðu hvers nemanda sem nýtist kennurum, nemendum, forsjáraðilum og skóla til úrbóta.
Mennta- og barnamálaráðuneytið gerir ráð fyrir að í vor liggi fyrir útfærsla á fyrirkomulagi samræmds námsmats til framtíðar og að samráð um þróun Matsferils haldi áfram með hagsmunaaðilum.