Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum 7. október síðast liðinn samstarf milli íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar óskuðu eftir því við nefndina að komið yrði á formlegu samstarfi milli sveitarfélaganna í samnýtingu sund og líkamsræktarkorta. Þeir sem eiga gild tímabilskort hjá annarri íþróttamiðstöðinni geta því fengið aðgang að rækt og/eða sundi í allt að tvö skipti á viku á hvorum stað.
Að auki verði tímabundinn aðgangur fyrir korthafa þegar annar aðilinn er með lokað vegna viðhalds eða þrifa.
Forsíðumynd: Íþróttamiðstöð Dalvíkur