Forsætisráðuneytið og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa endurnýjað samning um þróun og kynningu Jafnvægisvogarinnar.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður FKA, undirrituðu samstarfssamning í Stjórnarráðinu í síðustu viku.

Jafnvægisvogin er mælitæki til að hafa eftirlit með stöðu og þróun kynjajafnréttis í stjórnum og framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja. Með samningnum veitir forsætisráðuneytið FKA stuðning til að stuðla að auknu kynjajafnrétti í íslensku atvinnulífi. Samkvæmt samningnum skal FKA m.a. uppfæra Jafnvægisvogina reglulega, annast fræðslu um mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum og stjórnendateymum og lyfta sérstaklega þeim fyrirtækjum sem náð hafa markmiðum verkefnisins með úthlutun viðurkenninga.

Samningurinn er til eins árs og gildir frá 24. júní 2021 til 24. júní 2022 og er framhald á stuðningi forsætisráðuneytisins við FKA og Jafnvægisvogina. Forsætisráðuneytið greiðir FKA fimm milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til.

Skoða á vef Stjórnarráðsins