Vinkonurnar Freydís Emma, Ayanna Manuela, Bríet Anja og Emelía Íris söfnuðu fallegum steinum og seldu til styrktar Rauða krossinum.
Söfnunarféð kr. 5.250 mun renna í jólasjóðinn Stekkjastaur í Húnaþingi vestra.
Rauði krossinn þakkar stelpunum fyrir framtakið og þá hugulsemi og samkennd sem býr þar að baki.
Frétt og mynd: aðsent