Lagt fram erindi frá Róberti Guðfinnssyni f.h. Selvíkur ehf. til skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar, dagsett 15.desember 2022.

Í erindinu er óskað eftir samþykki Fjallabyggðar fyrir fjórum hraðhleðslustöðvum á bílastæðalóð Selvíkur við Snorragötu 4 sem settar verða upp í samstarfi við HS orku og tæknifyrirtækið InstaVolt.

Einnig mun Selvík ehf. setja upp 6 einfaldar hleðslustöðvar á bílastæðalóð Sigló Hótels við Snorragötu 6A.

Nefndin hefur yfirfarið erindið og gerir engar athugasemdir við það. Engar kvaðir eru í gildandi lóðarleigusamningi Snorragötu 4 varðandi starfsemi rafhleðslustöðva á lóðinni, sem samræmist vel núgildandi deiliskipulagi þar sem lóðin er skilgreind sem bílastæðalóð. Þetta á einnig við um lóðina Snorragötu 6A.