Á sunnudaginn kemur, 24. mars kl. 17.00, verður síðasta dægurlagamessa þessa vetrar í Siglufjarðarkirkju.
Karlakórinn í Fjallabyggð og Kirkjukór Siglufjarðar syngja.
Einsöngvari verður Baldvin Júlíusson.
Undirleikarar og stjórnendur verða Elías Þorvaldsson og Rodrigo J. Thomas.
Hugleiðingu flytur Gunnar Rögnvaldsson, uppistandari og staðarhaldari á Löngumýri í Skagafirði, sem verður með gítarinn nærri sér og leiðir m.a. almennan söng í lokin.
Aðgangur ókeypis!