Helgina 26. – 28. júlí verður síðasta sýningarhelgi Örlygs Kristfinnssonar “Geirfuglinn” í Söluturninum við Aðalgötu á Siglufirði. Á sýningunni, sem er einstök, eru myndir unnar með vatnslitum á pappír og leir.
Sýningin verður opin frá kl. 15:00-17:00 alla helgina.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.