Siglufjarðarvegur er ófær en unnið er að mokstri.
Snjóþekja er á Öxnadalsheiði og víðar en hálka og skafrenningur er á helstu leiðum. Þungfært er á Þverárfjalli en mokstur er þar í fullum gangi, ófært er í Almenningum. Þungfært er á Siglufjarðarveginum og í kringum Sauðárkrók.
Holtavörðuheiði er lokuð og koma næstu upplýsingar um kl 11:00, vont færi og margir bílar fastir. Bent er á hjáleið um Laxárdalsheiði.
Sjá nánar á vefsíðu Vegagerðarinnar.





