Hún er fremur óvenjuleg þessi kuldatíð sem ríkt hefur frá því fyrir helgi segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á facebooksíðu sinni.

Segir hann: “Trúlega kaldasti kaflinn á öldinni sem gerir eftir sólstöður (21. júní).

Á Akureyri var meðalhiti sólarhringsins þessi:
Fim 23. júní: 5,5°C
Fös 24. júní: 5,6°C
Lau 25. júní: 5,9°C
Sun 26. júní: 5,4°C

Svo kaldir dagar þegar komið er þetta langt fram á sumar hafa ekki orðið á Akureyri í 30 ár. 1997 var líka kalt um þetta leyti, en sjónarmunn hærri hiti.

Seint í júní 1994 var álíka kaldur dagur og nú en hann var stakur. Í kjölfar Jónmessuhretsins 1992 sem áður hefur verið greint frá, var klárlega kaldara en nú 2022.

Óvenjuleg kuldatíð, en ekki einsdæmi. Kortið sýnir hita í 850 hPa ( +i 1.300 m. hæð), 26. júní kl. 00″