Sigurður Guðmundsson og BRÍET sendu nýlega frá sér lagið Komast heim, sem komið er í spilun á FM Trölla.

Platan Þetta líf er allt í læ kemur út 11. október

Þetta líf er allt í læ er önnur sólóplata Sigurðar Guðmundssonar með eingöngu frumsömdu efni.

Þó eru þær mun fleiri sólóplöturnar sem og auðvitað plötur Hjálma, hvar leynast stöku lög eftir Sigurð. En með plötunni Kappróður, frá árinu 2021 tók við nýr kafli sem hefur nú gefið af sér einnig þessa plötu. 

Lögin á plötunni fjalla um tilveru og tilvistarkreppu. Birtingarmyndir lífsins í fjölmenningarsamfélagi sem er rétt að slíta barnsskónum. Ástir og örlög.

Höfundur lags:: Sigurður Guðmundsson 
Höfundur texta:: Bragi Valdimar Skúlason

Lagið á Spotify